Langt er síðan við unnur létum okkur dreyma um hvað við gætum gert í staðinn fyrir brúðkaupsferðinna sem við fórum aldrei í. Í dag höfum við rætt hitt og þetta yfir MSN (þar sem við erum bæði mjög busy í vinnunni, eða þannig).
Og niðurstaðan, jú roadtrip upp og niður alla austurströnd bandaríkjanna. Þannig að farið var af stað í að skoða hvað þetta kostaði jú allt saman og líta á hvert farið yrði, hér fyrir neðan er url á kort sem sýnir annann helming ferðarinnar. Til að spara var svo hugmyndinn að keyra aftur upp til boston. Þó svo ég hafi alveg hugsað að kannski geti ferðaskrifstofa kannski reddað okkur betri deal.
Þetta er jú grunn hugmyndinn, taka 2 vikur í þetta og keyra. Hvenar á svo að gera þetta spyrjið þið. Tja ekki fyrr en á næsta ári, fella þetta saman við stór afmælið, en samt líklegast ekki farið fyrr en að hausti til.
Sit hérna inni á einhverju aumu internet kaffihúsi í amsterdam thar sem thad er ekki hundi út stígandi fyrir kulda og hótunum um rigningu.
Fluginu mínu var seinkad um einn dag vegna thess ad flugfelagid sem vid erum ad fluga fyrir var eitthvad ad vesenast, eyddi nóttinni á Hilton hótelinu hjá flugvellinum. Allt til solu thar takk fyrir, gat leigt mer video á hótelinu, bara í gegnum sjónvarpid, ýta á 3 takka og voila, listi af myndum til ad velja úr, allt frá bláu yfir í barnamyndir. Týmdi bara ekki 1500 kallinum í thetta, las frekar bara bók. Fór thó á netid í sjónvarpinu....thad var frekar spes.
Annars er stefnan sett á Dubai med vidkomu í malpensa á ítalíu, brottfor er um 21 í kvold. Fae sem sagt ad hitta áhofnina á eftir thegar eg er buin ad koma mer upp a schipol aftur. En nú er nóg komid, heyrumst sídar.
Jæja, þá er ég búin að pakka nánast öllu og lítið eftir nema kannski laga aðeins til áður en við förum að sofa. Ræs klukkan 5.30 í fyrramálið, og lagt að stað til Sheffield, þó reyndar með stoppi í Nottingham. Jú pílagrímaförinn verður loksins að veruleika.
Öll hótel pöntuð og borguð, og allt tilbúið fyrir okkur. Biggi ætlar að líta á strákanna meðan við erum í burtu og sjá til að þeir svelti ekki í hel (ólíklegt, þar sem þeir eru soddan fitubollur). En eftir viku verð ég sitjandi í flugstjórnar klefa TF-ATX og ný búin að fylgjast með flugtaki hennar af schipol flugvelli í amsterdam. Með stuttri millilendingu í Basel-Mulhouse verður ferðinni til Dubai haldið áfram. Býst fastlega við að ég lendi í dubai um 4-6 leitið á fimmtudagsmorgun að íslenskum tíma. Þaðan er svo 2 tíma bílferð til Abu Dhabi, ekki leiðinlegt það.
það er með öllu óvíst hvert eða hvort ég fari í eitthvað flug með vél frá Abu Dhabi, en ég væri vel til í að líta yfir til afríku eða indlands, þó svo að ég fari varla frá borði þegar þanngað er komið (enda vélinn að fara aftur í loftið 2-3 tímum síðar.
Annars ætla ég að hætta þessu blaðri og fara koma mér í að tæma út úr ískápnum svo það verði ekki allt angandi af myglufýlu þegar Unnur kemur aftur heim.
Mér var hugsað til Jóhanns tengdapabba um daginn þegar ég fór með Helga í jólainnkaupinn hans þar sem hann var bíllaus í Reykjavik. Eins og mörgum öðrum góðum mönnum þá finnst Jóhanni lítt gaman af umferðinni hér í borginni, en þennann þriðjudag hafði jólastressið komið sem aukabónus á umferðinna, eins og supersize á McDonalds.
Stóð bill við bíll allt frá gatnamótunum sæbrautar og bústaðavegs og upp beygjuna inn á Miklubraut og inn að skeifu. Jú við erum að tala um hátt í 800-900 metra bílaröð á rauðu ljósi. Ef borginn væri lifandi og götunar æðakerfi, þá væri hjartastopp daglegt brauð í lífi Reykjavikur. Ég hef oftar en ekki þurft að keyra frá Granda út í Garðabæ rétt eftir klukkan 17 ef svo liggur við að ég hafi verið á bílnum þegar Unnur þurfti í vinnu. Iðulega á þessum ferðum mínum sit ég 3/4 af tímanum í röð á hinu eða þessu rauða ljósi. Anda svo léttar umleið og ég er kominn fram hjá ljósunum ofan við kringlu. Því þá er ég nánast kominn heim, sem sagt seinni helmingur vegalengdarinnar tekur um 3 mínutur í akstri, meðan hinn helmingurinn tekur um 30. Maður spyr sig, hvar liggur vandinn.... og vandinn er augljós. Rauð ljós, eða öllu heldur ljós. (tókuð þið eftir augljós brandaranum....nei bara spyr).
Mig rámar í góðan Spaugstofu brandara hér fyrr á þessum áratug þar sem gert var grín að biðröðum sem mynduðust við gatnamót kringlumýrabrautar og miklubrautar. Ég bara spyr hvenar á að gera eitthvað í þessu, lausninn er svo augljós að ég gæti meira segja hannað hana á eina servíettu með blýanti án þess að þurfa að skyssa hana upp eitthvað. Eins og þið kannski vitið þá er ég nýkominn frá Bandaríkjunum (svona tiltölulega nýkominn allavega) og þar er að finna gatnamót sem láta allt vegakerfi íslands blikna í samanburði). Það eina sem þarf að gera er eftirfarandi; copy/pastea gatnamótinn hjá miklubraut/sæbraut og setja þau niður á kringlumýri/miklubraut og sæbraut/bústaðavegur... málið leyst.
Menn tala alltaf um hlutina og það er mjög mjög auðvelt að missi sig í umtali og spegulasionum um hitt og þetta og láta svo ekkert af því verða, tala nú ekki um ef menn sitja þing eða nefndir. Stundum óska ég mér að yfir íslandi væri einvaldur, því þá kannski kæmum við einhverju í verk.
Annars hef ég lítið um mest annað að segja nema hvernig væri að setja upp lest sem gengur eftir miklubraut endilangri og síðan út kringlumýrabraut og áfram yfir í hafnarfjörð.... bara spögulerun
Þar sem ég sit hér í vinnunni með mest lítið að gera þá datt mér í hug að deila með ykkur hugsunum mínum um þá hluti sem hafa gengið á í mínu lífi og lífi allra Íslendinga síðustu viku og vikur. Vill byrja á að taka fram að þetta er ekki beint blogg færsla sem slík þar sem ég mun líklegast minnast lítið sem ekkert á mitt líf.
Í fréttum síðustu daga hefur borið miklu á svo kölluðum Öfga feministum sem hafa sent mis vinsælar jólakveðjur/óskir til landsmanna í umbúðum sem minna í alla staði á börn. Nú tilheyri ég einum þeim stærsta og mest "misnotaða" minnihluta hóp heimsins. Jú ég er hvítur karlmaður, sem gerir mig að frjálsu skotmarki fyrir alla aðra, enda ég og mínir hinir vondu þegar kemur að allri þjóðfélags umræðu.
Aldrei hef ég setið fund þar sem rætt var hvernig við gætum aukið launamismun milli kvenna, né lært hinar bestu aðferðir til að hlutgerfa og misnota konur, og ekki kannast ég við áfangan Nauðgun 101 sem samkvæmt gospeli feministafélag Íslands er kennt öllum grunnskóla drengjum á landinu í dag.
Ég tel mig ekki hafa bælt konur á minni æfi (ef burt talinn eru systur mínar en þar var ég að sinna mínum skyldum sem stóri bróðir og kenna þeim að berjast móti mótlæti). Mér hefur alla tíð þótt sjálfsagt að karlmenn taki þátt í heimilstörfum enda ólst upp við það að Pabbi eldaði á móts við mömmu og gerði það sem gera þurfti.
Nú langar mig að koma að þeim punkti sem ég vill fram færa, þannig er mál með vexti að við strákarnir meigum varla verja okkur þessu oforsi öðruvísi en að vera karlrembur/rasistar eða einfaldlega svín. Við verðum að ganga líkt og mús að ótta við að gera einhvurn fjandan sem við ekki skiljum af okkur sem síðar er túlkaður sem gróft misnotun á konum/börnum/dýrum/sófasettum. Ég hef fundið fyrir þessu eins og margir vita vann ég á frístundaheimilli í fyrravetur, það sem margir vita ekki er að kollegi minn fékk á sig ásökun um kynferðis misnotkun sem einfaldlega var algjörlega fáránleg. Kom síðar nátturulega bara í ljós að þetta var 6 ára stelpa að ljúga. Ekki er ég að rægja allar ásakanir um misnotkun, en bið fólk einfaldlega um að gefa sér tíma og hugsa aðeins, þetta hefði átt að eiga sér stað á vinnu tími í því húsnæði sem við höfðum til afnota. Sem einfaldlega gerði þessa sögu einfaldlega svo fjarstæðukennda að þetta var aldrei möguleiki í okkar augum. Svo ekki sé minnst á að þessi stúlka sem um ræðir er eins og unnur sagði "skuggalega mikill og snöggur lygari". En þetta mál byrjaði að vinda uppá sig í kerfinu og innann skamms var viðkomandi starfsmaður sendur í "frí" sem nátturulega hjálpaði rosalega í hinu undirmannaða umhverfi sem fyrir finnst í þessum geira.
Okkur hinum var bent á að ef við þyrftum að taka utan um börninn ættum við að snúa hliðinni í þau og halda þannig að þau geti alltaf komist undan. Listinn hélt áfram og varð undarlegri með lestrinum.
"Að gera úlfalda úr mýflugu" þessi málsháttur hefur hugsanlega aldrei átt meiri rétt á sér heldur en núna. Menn einblína á pínulitla og gjörsamlega gangslausa hluti, bendi á þetta rugl sem upp kom á alþingi varðandi hvernig lituð föt nýburar ættu að klæðast. Meðan þetta er að taka upp tíma þingmanna og fjölmiðla þá tröllríður ofsaakstur og vesældar dómar yfir glæpamönnum landi og þjóð. Ökumenn teknir á yfir 200 kílometra hraða innann bæjar, fá sekt og missa prófið í 3 mánuði. Man ekki betur en Kim greyið hafi misst leyfið í 2 ár fyrir að taka framúr á blindhæð og lenda í slysi. Maður spyr sig hvort ekki mætti taka leifið að viðkomandi ofsaökumanni í jafnlangan tíma, eða er minna mál að keyra á þre-fjórföldum hámarkshraða innan bæjar heldur en virða ekki reglur um framúrakstur á blindhæðum?
Svo ekki sé minnst að dópsala, nauðgara og barnaníðinga, sem fá dóma sem minna helst á að fá ekki broskall fyrir verkefni í skóla í 6 ára bekk svo létvægir eru þeir. Hópnauðgarar fá farbann sem síðan er svo ómerkilegt að þeir geta farið úr landi án þess að nokkur maður lyfti fingri til að stöðva þá, ekki bara einn þeirra, nei nei. Tveir af þremur fara í sitt hvoru lagi meira segja.
Er ekki kominn tími fyrir okkur að hætta að hlusta á þessa öfgafeminista og allt það fjaðrafok sem athyglis sýki þeirra byggist upp á og beita okkur að því að laga það sem virkilega er að í þessu landi. Dómskerfið er alltof léttvægt og hriplekur, aldraðir og öryrkjar búa við aðstæður sem varla eru rollum bjóðandi meðan elita landsins keyrir um á 20 milljón króna lúxus jeppum. Hvernig væri að selja bílinn undan útvarpstjóra og minnka niður skurð sjúkrahúsanna um því sem munar þeim 6-8 milljónum sem bíllinn kostar?
Ég ætla sem minnst að tjá mig um útnefningu sonar daviðs oddssonar sem héraðsdómar framyfir þrá aðra sem óháð matsnefnd hafði úrskúrðað hæfari en hann, held það þurfi ekkert að útskýra þetta fyrir fólki til að það sjá hve rotin þessi útnefning er.
En núna ætla ég að hætta þessu rausi og kveðja með jólaósk Sigga.
Siggi óskar þess að fjölmiðlar hætti að hlusta á öfgafeminista og alla vitleysuna sem uppúr þeim vellur.
Sidasti dagurinn i skolanum ad fara byrja. Sidasti timinn og sidasta mappan sem vid faum. Ja eg er buin ad fa 3 moppur herna med a milli sin litlar 1400 A-4 bladsidur eda svo. A liklegast eftir ad enda i yfirvikt utaf theim.
Kemst svo ad thvi i kvold hvort eg get nad ad koma ollu ofan i toskur eda ekki. Gaeti thurft ad vera svolitid creative i pokkunar taekni.
Eigum flug hedan upp til new york klukkan 1235 ad stadartima, fengum thvi breytt gamli midinn sagdi klukkan 1500.... klukkan 15 sidustu 3 daga hefur verid brjalad thrumuvedur og laeti. Vill helst ekki tefjast herna og missa af fluginu heim, enda attum vid upprunalega ekki ad hafa nema um 2 tima fra lendingu a JFK til brottfarar, og thad eru um 8 terminal byggingar a JFK flugveli. Hver a staerd vid leifsstod eda svo.....
Annars aetla eg ad haetta thessu bladri nuna og heyrumst svo aftur thegar eg er kominn heim i sidmenningunna og goda vedrid
Jamm endanlega fullkomlega og algjorlega buin ad klara thetta namskeid. Their hentu ollu i okkur, lika eldhusvaskinum, tvisvar og vid stodumst allt, rugludumst litid sem ekkert og gafum god og markviss svor.
Nuna eru bara 3 dagar af workshop eftir og svo heim a manudagskvold. Lendi i keflavik a thridjudagsmorgunn rett upp ur 6 eda svo.
Nuna er bara ad slappa af, halda ser vakandi i thessum auka timum og verda ekki of thunnur. Ja PARTY i kvold.
Jaeja tha er thad komid a hreint. Jafnvel thott eg stafsetji nafnid mitt vitlaust a profinu a morgun nae eg samt med 7.4 i medaleinkunn fyrir allt dotid.
Jamm gerdi mer litid fyrir og tok profid i morgun (sem var flugplans prof) upp a litla 100%, og gefid ad eg rett slefi a morgun tha er eg med 9 i medaleinkunn fyrir afangan.
En thad thydir ekki ad allt se buid, eg er nuna sitjandi herna ad bida eftir ad upprifjun haldi afram...gallinn er ad hradinn sem vid erum ad fara yfir thetta er rosalega litill og endar liklega med veru okkar her lengur en til 4 i dag. Svo er bara heim og laera meira. Vegna thess ad thetta er lika efnid sem vid forum i munnlega profid upp ur.
Fimmtudagurinn er svo annad flugplans prof, geri bara mitt thar. Hratt, orrugt og nae thvi. Folk (thar a medal kennarinn) eru gapandi yfir hradanum hja mer a thessum verkum. Enda kannski ekki skritid, ekkert nema tolur og staerdfraedi. Plus oll thessi ar af hlutverkaspila uppflettingum og ad vinna med hinar og thessar toflur. Thad er ju thad sem thetta snyst um.
Svo er bara ad vona ad eg lendi med einhverjum sem eg a samleid med i munnlega profinu (erum oftar en ekki tekinn 2 og 2 inn i einu). Gallinn er ad thad er byggt a einkunnunum okkar og odru eins. Verst ad their taka ekki adferdafraedi med inn i thetta, vegna thess ad eg og Ingi erum med svipadar einkunnir en beytum svo olikum adferdum til ad utskyra og segja hluti ad vid myndum liklegast enda uppi ad rifast um eitthvad i profinu.
Anyway, aetla fara gera eitthvad uppbyggilegra en ad blogga og hlusta a iPodinn minn